IRC-Galleria

SöknuðurSunnuntai 15.02.2009 03:45

Nú haustar að á heiðum og húmar í skóg
hver söngfugl í dalnum til sóllanda fló
en ein sit ég eftir um andvökunótt
og harma það að sumarið er horfið svona fljótt.

Þú komst eins og vorið með sól og söng og blóm
um dali fór hafræna við hörpu þinnar óm
og veslings litla hjartað mitt í hræðslu að þér dróst.
Það ætlaði að flýja þig en faldi sig - við þitt brjóst.

Og hönd þín snart strenginn, harpan skalf af fró
gleði allrar veraldar við hug mínum hló
mér fannst ég hafa sofið og syrgði það eitt
hve seint ég hafði vaknað - og vissi ekki neitt

Við rökkur þinna söngva leið sumarið hjá
svo hvarfstu mér, vinur, og haustið lagðist á
en hvenær sem hafræna heim í dalinn fer
frá kynjalöndum fjarlægum hún kveðju til mín ber

En ég hef beðið lindina sem líður mér um kinn
að flýta sér til hafsins og finna ástvin minn
og spyrji hann síðan hver sendi hana af stað
þá fær hún honum aðeins þetta fölnaða blað

Þá grípur hann strenginn og grætur sáran við
tár hans verða að hljómum í hörpunnar klið
og ómarnir svífa af sænum til lands
með bergmálum fjallanna flýg ég svo til hans

-Tómas Guðmundsson

Etkö vielä ole jäsen?

Liity ilmaiseksi

Rekisteröityneenä käyttäjänä voisit

Lukea ja kirjoittaa kommentteja, kirjoittaa blogia ja keskustella muiden käyttäjien kanssa lukuisissa yhteisöissä.